Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Hulda Björk Haraldsdóttir
  • Staður: Eskifjörður
  • Atvinna: Reikningagerð Flytjandi
  • Hjúskaparstaða: Í sambandi
  • Um mig: Er að vinna og er í skóla. Er í FÁ á Nuddbraut. Hef helling að gera :)

Auglýsing

Klukkan

Atburðarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

Á ég að læsa síðunni minni?

Innskráningar kubbur

Komin tími aftur á Reykjavíkina! :(

19. ágúst 2008 klukkan 10:13
Ég veit ekki hvað verður um þetta blogg núna þegar allt fer á fullt.
Ég ætla að blogga núna og segja í fáum orðum hvernig sumarið var.

Ég vann hjá Flytjanda á Reyðarfirði með tengdó, það var bara rosalega fínt, skellti mér með þeim heim í hádeginu og fékk mér að borða. Alltaf framreyddur fiskur AlA ERNA. Ég slæ nú ekki hendina á móti fiski! Ætli þau séu ekki komin með nett leið á mér þar sem að við erum saman öllum stundum hahaha.... En ég hafi gaman af því.

Ég var aðeins að Hjálpa Kidda í Valhöll þegar það vantaði. Það var fínt, enda er Kiddi óttarleg perla. Ekki vantaði allavega gleðina hjá honum. Glottandi

Við fórum á ættarmót hjá fjölskylduni hans pabba. Að venju var tekið á því og skemmtilegri fjölskyldu er ekki hægt að finna. Þetta fólk fer með því hugarfari að skemmta sér. Það er sko gert og gert almennilega!! Koss



Guðrún og Ranni elskurnar komu að heimsækja okkur Sigga um Versló. Þau voru frá föst-mánud. Það var æðislegt að fá þau! Það er sko óhætt að segja að þau keyri ísland á enda til að hitta okkur. Þessar elskur, greinilega vinir manns. Love jú sætu mín Koss Enda litla prinsessan sem fæðist bráum verður ofdekruð af Huldu "frænku" hehe.


Sumarið er búið að líða alltof fljótt. Ég er varla komin fyrr en ég þarf að pakka öllum helv... Fötunum mínum aftur saman til að fara suður. Ég get ekki sagt að tilhlökkunin sé mikil að fara í Reykjavík. Okkur Sigga líður ótrúlega vel hérna fyrir austan! Enda mikið af vinum okkar hérna. Við erum búin að fara í matarboð, kokteilboð í kokteilklúbbnum KIDDI, golf, fyllerisgolf og Happy Gilmore golf, ball, snilldar partý, hverfapartý og bara gert allan andskotann ef ég má taka svo til orða!

Ísabella Danía og Haukur Eron eru búin að vera hjá okkur í 2-3 vikur. Heimir fór á sjóinn og Anna Gulla fór að vinna í rvk. Mamma var í sumarfríi þannig að hún var heima með þau. En það er sko óhætt að segja að það sé búið að vera mikið að gera. Berjamó, hjólatúr,lautarferð,vatnsblöðruslag,kubb og allir leikirnir, það var æðislegt að fá þau hingað!

Ég bjó samt í poka í mest allt sumar. Þar sem að ég var að flakka á milli Esk og Rey til skiptis og fötin mín öll á Esk. Get ekki sagt að það hafi verið skemmtilegt. En þetta mun breytast, kannsi verður næsta sumar svona síðan verður bara keypt hús... ohhhh... ljúft. Get ekki beðið eftir að eiga heima hérna fyrir austan með allt mitt dót! Það er bara 1 ár eftir...

Nú er ég að fara eftir 3 daga suður. Ég næ menningarnótt, Clara vinkona er búin að bjóða mér í afmælisveislu sem er með þemað. Grímupartý. Ég mun eflaust láta sjá mig þar því að hún býr rétt hjá mér. Ég trítla yfir, en ekki fræðilegur að ég ætla niður í bæ, hef einu sinni gert að og mun aldrei gera það aftur. Ætla samt að horfa á flugeldasýninguna, mjög líklega bara heiman frá mér.
Ég neita því ekki að það verður ljúft að vera útaf fyrir sig að nýju. Ekki það að foreldrar okkar hafi verið eitthvað erfiðir bara þegar við höfum verið bara 2 þá er það óskup ljúft að vera bara 2.

Ég mæti síðan GALVÖSK á Ljósanótt í Kefl city eins og hölt hæna. Anna Alb er búin að lofa að taka mig á hestbak upp og niður hafnargötuna þannig að ég verð í góðum málum. En við verðum hjá mömmu og pabba í kefl á Heiðarbrún.

Skólinn hjá mér byrjar núna 26. Þá er skólasetning, fyrsti skóladagurinn er 27. Ég semsagt komst inn í verklega nuddið og það mun vera á kvöldin frá 5-9 3x í viku og aðra hverja helgi. Það verður frábært. Ég verð síðan í fjarnámi frá FÁ eins og ég er búin að vera að gera. Á alls ekki mikið eftir. Ég þarf semsagt að finna mér vinnu frá  7-2 eða 3. Spurning hvernig það á eftir að ganga.
Ég er að fara í aðgerð eftir 9 daga eða 28.ágúst. Ég verð eflaust eh tíma að jafna mig eftir það. En skólastjórinn sagði að það væri fínt þá gætu nemendurnir séð hvernig ætti að meðhöndla meiðsli. Ég verð því heima og verð bara í skólanum og fjarnáminu. Fyrst um sinn. Ég ætla að fara að vinna 1. okt. Þá verður komin regla á þetta allt og ég get bætt inn vinnu.
Ég er líka að fara með allri fjölskyldunni til Tenerife eins og ég sagði í síðasta bloggi.
Við breyttum um hótel og verðum á þessu hóteli:
Parque Santiago Apartments:









Eins og þið sjáið á þessum myndum get ég ekki kvartað! Ég hlakka bara ofur mikið til! Þetta verður alveg æðislegt. Ef þið viljið sjá meira af þessu hóteli og öfundast út í mig hehe þá er slóðin www.sumarferðir.is

Þetta er allavega það sem er á döfinni. Mikið að gera framundan en það er alveg þess virði. Vonandi þolir bara hnéð og bakið á mér þetta.
Pollýanna verður allavega á svæðinu til að grípa neikvæðnina ef hún kemur upp.

En elskurnar mínar hafið það sem allra best og búið ykkur undir veturinn.
Dimmuna og snjóinn, bara að vera bjartsýnn þá verður komin jól og sumar áður en við vitum af.
Gunna glaða kveður að sinni.

Speki dagsins:

" Oft eru læknar með lífið í lúkunum." Glottandi



Þetta blessaða blogg.

12. júní 2008 klukkan 09:06

Ég veit ekki hvar skal byrja. Allavega þá er ég ekki búin að blogga neitt síðan í apríl minnir mig! Það segir nú bara það að ég nenni þessu ekki lengur og þetta er einhvern veginn orðin meiri kvöð en hitt! Ætla að koma með eina færslu núna þar sem að það er allt breytt hjá mér en síðan kemur örugglega ekkert fyrr en eftir 2-3 mánuði.

ESKIFJÖRÐUR.

Ég og Siggi komum austur um miðjan maí á fjörðinn fagra sem er að sjálfssögðu Eskifjörður en ekki Reyðarfjörður!! Hlæjandi
Það er bara svo yndislegt að vera hérna. Ég fer út að hjóla án þess að vera hrædd um að það verði keyrt á mig. Kyrrðin er engu lík. Fuglasöngur yndislegur og að gefa hestunum brauð er draumur. Er eitthvað betra en þetta?



Það er allavega óhætt að segja að leið okkar liggur hingað austur þegar við erum búin að læra. Það er bara ekkert fyrir alla að búa í Reykjavík!

Við erum að fara á ættarmót helgina 11-13Júlí hjá pabba ætt það á eflaust eftir að vera eintóm gleði þar sem að þetta fólk kann að hafa gaman.

Ég sagði við mömmu að ég og Heimir værum að spá í að bjóða gamla settinu á hótel. Frost og funa í Hveragerði þegar gamla verður 50tug. Þá segir hún ég var nú að hugsa annað... Ég bara ohhh hvað nú! Þá sagði hún að hún væri að spá í að bjóða okkur systkinum út ásamt viðhengjum. Koss
Þannig að ég fór í málið og pantaði ferð fyrir okkur 23-30sept til Tenerif, það er frábært að lengja sumarið svona! Það er samt meðalhiti 27°C Spurning hvort að ég lifi það af. Þetta verður æðislegt við 6 fullorðin, Ísabella og Haukur! Við höfum aldrei farið saman út við systkinin og ekki ég og Siggi heldur þannig að það er bara verið að slá 2 flugur í einu höggi!

Ég fer reyndar í aðgerð á hné 28. ágúst þannig að ég verð að jafna mig þegar við förum út og ekki skemmir að hafa hitann!! Ég hlakka allavega mjög mikið til! Það eru 103 dagar í þetta þannig að ég get verið poll róleg!
Læt hér fylgja myndir af hótelinu.


Ég er næstum viss um að þetta verði draumur í dós!
Jæja þar sem að það er allt of langt í þetta verð ég að snúa mér að daglega lífinu sem er mjög fínt.
Heilsan mætti vera betri ég er að vinna núna 100% það mætti ganga betur ég verð að sjá hvernig næsta vika verður og það verður bara að koma í ljós. Bakið er mjög slæmt ásamt því að hnéð er yfirleitt 5falt. Þannig að eina sem ég get gert í þessu er að labba og hjóla og labba þá líður mér betur!

Ég held að ég hafi þetta ekkert lengra, hafið það gott elskurnar og njótið sumarsins í botn, ég ætla allavega að gera það. Koss

Speki dagsins:

"Ég á svo bjarta framtíð að þú þarft sólgleraugu."

Lalli Letingi!!!

06. apríl 2008 klukkan 01:12
Nú er komið tími á smá blogg!!

Hvað get ég sagt annað en að það er mikið búið að ganga á undan farin mánuð!
Ég fór til Katrínar litlu í Portúgal! Það var æðislega gaman hjá okkur, veðrið hefði alveg mátt vera betra. Við fengum samt alveg 2 góða daga sem voru alveg 20-25 stiga hiti.
Ég verslaði nú ekki mikið þessa viku þar sem að ég keypti evruna á 125 kr og varð skapið á mér eftir því, segi svona. Ég verslaði bara aðeins í h&m. Við fórum að eins á djammið og það var semí fínt.
Ég fann ekki fyrir í bakinu á þessari viku! Hitinn og allt labbið var alveg frábært fyrir kroppinn.
Er mikið að spá í að taka mitt hombagesja og flytja eitthvað út í heim.
Um leið og ég kom heim þá fann ég fyrir bakinu en þar sem að ég nenni ekki að skrifa um það núna þá ætla ég bara að segja að það er bara sama ástandið og síðast. Sjúkraþjálfari og þar eftir götunum. PUNKTUR!
Ég ætla að setja inn myndir á komandi viku, ég vona að ég muni standa við það.

Pabbi kom sl. þirðjudag og var hjá Heimi bróðir. Við fórum út að borða og ég var mikið hjá þeim að dúllast með litlu krýlonum. Það var alveg frábært að hafa gamla hérna. Fór með hann að versla og hann keypti sér gallabuxur og töffara peysu. Mamma verður örugglega rosa ánægð að fá gæjann ný dressaðann.
Við fórum í sund ég pabbi og Ísabella, pabbi og Ísabella voru eins og hafmeyjur og ég var alltaf að kippa Ísabellu uppúr vatninu til að gá hvort að hún andaði ekki örugglega. Síðan spurði ég prinsessuna hvort að hún vildi ekki kúta og hún horfði á mig og sagði! HULDA KÚTAR ERU BARA FYRIR SMÁBÖRN! ÉG ER SKO ORÐIN 6!!! Ég bara vóóóó..... sorry.
Hún ætlar greinilega að vera eins og afi sinn. Semsagt með sundfit á milli lappana! Kafaði meira að segja í heitapottinum!



Pabbi fór heim í dag, Ísabella var ekkert alltof ánægð með það! Tengda mamma kom í gærkvöldi þannig að það er nóg að gera. Við erum einmitt búin að vera að spila Yatzy núna 2 kvöld og ég hef þurft að láta í minni pokann mér til mikillar óánægðu!!!!!  Hún RÚLLAÐI mér upp!
Þannig að ég er hætt að spila Yatzy næstu 6 mánuðina!
Alltaf er nú jafn leiðilegt að tapa!!!!

Það var bekkjarhittingur hjá okkur skvísunum um daginn það var nú alveg rosalega fínt það sem að ég gat verið. Ég varð bara veik og Siggi minn kom að sækja mig kl hálf 1 þannig að það var ekki mikið stuð á mér, enda ekki mikið áfengi sem ég hef drukkið undan farna 4 mánuði!
Nú er ég hætt að drekka næstu mánuði.
Stelpurnar gerðu samt gott úr þessu og skelltu sér í bæinn og skemmtu sér vel og fengu sér pizzu.

Við erum að fara í fermingu á morgun til frænku hans Sigga, Sigga til mikillar gleði!! Þannig að við erum bara að fara að halla okkur núna a næstu mín.

Ég hef samt rosalega mikið að segja um allt sem að er að gerast í þessu BLESSAÐA þjóðfélagi okkar en ég bara nenni ekki að skrifa það. Ég verð þá frekar pirruð í skapinu og fólk mun pottþétt ekki nenna að lesa það! En allavega þá vona ég að þið hafið þeð sem allra best elskurnar mínar. Myndir koma á næstu dögum.

NÝ KÖNNUN!!!!!!!!!!!!!



Speki dagsins:

" Ekki er allt gull sem glóir."

Er ekki kominn smá tími á blogg hérna hjá mér?

13. mars 2008 klukkan 23:52
Jæja.....

Ég ætla að sjá hvernig verður tekið í þessa færslu og sjá hversu mörg komment ég fæ. Ef það verður að skornum skammti þá held ég að ég nenni bara ekki að vera að blogga um bara ekki neitt hérna sem enginn hefur áhuga á. Okay? DÍLL?




Jæja nóg af tuði og nú ætla ég að segja smá fréttir og einhverja hluti sem skipta kannski ekki máli.

Ég er ekki alveg nógu í bakinu! Ég er búin að vera vinna þessa viku hálfan daginn og annan hvern dag.
Ég er í sjúkraþjálfun á næstum hverjum degi! Ef ég fer ekki í sjúkraþjálfun og fer ekki í ræktina af sökum leti þá fæ ég sko að kenna á því þannig að það er eins gott að hafa sig alla við!
Skólinn mætti sko ganga betur!! Ég hef ekki getað sinnt honum sem skildi þar sem að ég á mjög erfitt með að sitja lengi og er því komin frekar langt eftir á, en vonandi næ ég því bara upp. Spíta í lófana og þá getur maður þetta. POLLÝANNA POLLÝANNA. Ég er einmitt í fyrirtækja rekstri og á að skila inn sjóðbók sem mér finnst rosalega flókið, þannig ef einhver vill vera rosalega góður við mig þá vantar mig hjálp við það.

Sólveig sjúkraþjálfarinn minn útaf hnénu heldur að ég muni þurfa að fara í aðra aðgerð á hnénu!
Þannig að ég mun mjög líklega fara í hana í miðjan maí áður en ég kem heim og fer svo heim í fjörðinn fagra og láta mömmu og pabba dekra við sig! Ekki er það leiðilegt. Ég vona samt að undur og stórmerki gerist og ég þurfi ekki að fara í þessa aðgerð!



Ég er að fara næsta miðvikudag til Portúgals til katrínar verð þar í viku. Var löngu búin að panta farið áður en ég lennti í þessu blessaða slysi og borgaði nú ekki forfallagjöld og farið kostaði 65 þúsund þannig að ég var alveg í rusli hélt að ég kæmist ekki. Sjúkraþjálfarinn minn sagði að ég skyldi bara drífa mig þar sem að það væri gott að fá hita í kroppinn og í raun gerir maður lítið annað í útlöndum en að labba og það er einmitt sem að ég á að gera þannig að þetta var kannski ekki eins slæmt og ég hélt.
Þetta verður rosalega skemmtilegt! Mér finnst eins og að Katrín sé búin að vera þarna úti í 3 ár eða eitthvað álíka! Þannig að það verður rosalega skemmtilegt að sjá hana þegar hún kemur og sækir mig á flugvöllinn. Við erum að fara á hótel í 2 nætur, mamma hennar og pabbi ætla að splæsa á okkur.
Ég læt hér fylgja myndir með.

        


       

Siggi minn var að fara austur áðan. Hann fór með flutningabíl þannig að hann verður ekki komin heim fyrr en svona 4-5 í fyrramálið þannig að það er mikið fjör hjá honum. En miki rosalega leiðist mér þegar hann er ekki hérna, ég er bara búin að vera að láta mér leiðast. Skellti mér bara í göngutúr áðan. Á að vera dugleg að labba og fá blóðflæðið á stað þannig að ég fór bara aaallleiinnnn.....
Þannig að við verðum í sundur í 2 vikur. Það gerir manni bara gott.


Styrktartónleikarnir sem áttu að vera fyrir Möttu elskuna voru ekki. Það var eitthvað illa skipulagt, veit ekkert um þá eða hver var að skipuleggja þá. Vonandi verða þeir samt bráðlega þar sem að þessi elska er að fara í 4 aðgerðina sína! Hún er samt hetja og stendur þetta af sér. Kemur heim bráðlega það veit ég.


Hafið það sem allra best og verið nú einu sinni dugleg að kommenta! ELSKURNAR :D

Speki dagsins:

" Betri eru kynórar en tenórar."

Styrktartónleikar

06. mars 2008 klukkan 13:20

Styrktartónleikar

Styrktartónleikar verða haldnir fyrir Möttu sem hefur átt við erfið veikindi að stríða síðan í byrjun október.
Tónleikarnir verða á Barnum,
Laugarvegi 22 þann
8. mars
klukkan 22.00

Fram koma:
Hlynjur Ben
Djazzbandið DÚI
Jezebel

1500 krónur aðgangseyrir
20 ára aldurstakmark

Mætum öll sem getum og eigum huggulega kvöldstund saman til styrktar Möttu
Koss

AUMINGI

23. febrúar 2008 klukkan 18:58

Ég verð bara að setja þessar myndir hérna inn!!!!!
Martin Taylor ætti að fá lífstíðarbann! Djöfulsins aumingi er hann!!!
Læt myndirnar fylgja! Ég er ofur pirruð! Við erum að tala um það að Eduardo er eflaust ekki að fara að spila bolta fyrr en seint á næsta ári eða eitthvað álíka!
Þetta er svo slæmt brot að þetta hékk bara saman á skinninu!!!







Speki dagsins:

" Sjaldan fara sköllóttir í hár saman."

VILLA VONLAUSA

22. febrúar 2008 klukkan 15:59
Það er nú aldeilis kominn tími á smá blogg!

Ég er búin að gera bara mest lítið eftir bílslysið!
Þetta var aðeins verra en ég hélt að það væri.
Vinstra herðablaðið er laus og hálsinn er tognaður, 4 og 6 hryggjaliður er líka tognaður og brjóstbakið er allt frekar aumt.
Þannig að ef ég á að lýsa degi hjá mér eins og þeir eru búnir að vera sl mánuð þá er hann svona:
Ég vakna kl 8 og fer til sjúkraþjálfara, fer síðan í rækntina með honum og hann sýnir mér æfingar sem ég á að gera, ég kem heim reyni að læra eitthvað og fer svo inní rúm með grjónapoka um hálsinn og hitapoka á bakinu og fer að sofa. Þess á milli geri ég ekki annað en að standa upp og labba um íbúðina og liðka mig!
Það er óhætt að segja að ég sé NETT pirruð á þessu en þetta er víst bara eitt verkefnið enn sem ég verð að klára.
Ekki nóg með þetta allt þá er ég líka í sjúkraþjálfun útaf hnénu líka þannig að sumir dagar ganga ekki útá annað en að fara í sjúkraþjálfun sem er að vissu leiti kannski gott kemst fyrr í gang.

Ég fór í vinnu sl. Mánudag og það var rosalega vont, ég var mjög eftir mig eftir þann dag. Ég fór ekki í vinnu eftir það. Ég ætla að reyna að fara í vinnu næsta mánudag og sjá hvernig gengur. Þetta hlítur að fara að koma allt saman!!!
Vona það allavega er að verða KÚKÚLÚ!!

Eins og ég segi þá er lítið sem ég geri og hef þess vegna bara ekkert að segja nema það að ég er svona farin að hugsa um að hætta þessu bloggi þar sem að maður er kominn með facebook og líkar líka svona helvíti vel við hana! Karen skipaði mér að gera hana, varð að ósk hennar og viti menn I LIKE IT ALOT! Tala af sér

Ég og Siggi ætlum að vera fyrir austan í sumar. Þannig að það er eitthvað til að hlakka til.



Hafið það sem allra best elskurnar.

Speki dagsins:

"Margur sefur yfir sig sem vaknar ekki á réttum tíma."

VILLA VONLAUSA KVEÐUR AÐ SINNI!!!!!

KATRÍN

28. janúar 2008 klukkan 22:15
KATRÍN..........
ÉG ER AÐ KOMA TIL PORTÚGAL 19-26 MARS!!!!! :)
LOVE JÚ

Þrumufleygur er ónýtur þessi elska!!

17. janúar 2008 klukkan 20:01
Góðan dag.
Ég vildi bara sína ykkur elskulega Þrumufleyg minn!
Ég setti inn myndir af honum á MYNDIR!

Ég semsagt lennti í árekstri við bíl frá Flytjanda, þetta var millistærð af flutningabíl og hann var full lestaður.
Þetta skeði í Klettagörðunum.
Ég var á leiðinni heim úr vinnunni og rann yfir á hinn helminginn.
var ekki á nema svona 30, sem er gott en flutnigabílinn var á svona 60 eða eitthvað.

Ég slapp ótrúlega vel ætti eiginlega að vera ánægð með að hafa komist heim úr þessu.
Ég er illa tognuð í baki, hálsi,síðu og öxl.
Ég er bara að taka verkjalyf núna er með mikla verki en þetta verður vonandi fljótt að lagast.

Það var rosalega erfitt að kveðja Þrumufleyg í dag!
Þennan bíl ætlaði ég bara að eiga í 6 mánuði eða svo þegar ég var að vinna á Reyðarfirði en nú eru komin ein 3-4 ár síðan að ég eignaðist þessa elsku. Við erum búin að keyra 4-5 frá RVK-ESK eða ESK-RVK.
Þannig að við erum búin að eiga góðar stundir saman!
Ganga í gegn um súrt og sætt. Mikið sungið og dansað í kagganum mínum. Margir búnir að bjóða í hann.

En það er víst fyrir öllu að ég sé í lagi.

Vildi bara setja þetta inn, blogga síðar.

Kveðja
Hulda.

Gleðilegt nýtt ár!!

07. janúar 2008 klukkan 08:50

Ég æla að skella inn smá bloggi þar sem að VM kerfið er bilað hjá okkur og ekkert hægt að gera.

Gleðilegt nýtt ár, ég  vona að allir hafa komið vel undan fríi.

Ég kom svona semí út úr því. Maður er búinn að snúa sólahringnum gersamlega við og erfitt er að komast aftur í rútínu!! Hlakka til að allt verði eins og það var!

Jólin eru búin að einkennast af áti, leti, og unaði! Það var einnig mikið spilað Svalur.
Það er allavega hægt að segja að maður hafi haft það ofur gott. Það var engin löngun hjá mér að fara aftur til RVK, langaði bara að vera í sælunni fyrir austan!
Það er svo rólegt þar og ljúft. Siggi kemur í dag, hann var lengur en ég, skilur mig alltaf eftir alein Gráta. Borgarlífið á ekki við um okkur skötuhjú, sem er ágætt.
Það verður bara klárað að læra og flutt austur,það er allavega stefnan.

Aðfangadagur var aðeins öðruvísi en vanalega hjá okkur. Þar sem að Katrín er úti þá voru Eygló, Jonni og Bjarki hjá okkur. Amma og afi eru alltaf hjá okkur en síðan komu Einar, Kristófer og Daníel líka. Þannig að það er óhætt að segja að það hafi verið fjölmennt hjá okkur. Rosalega skemmtilegt! Rjúpurnar klikka aldrei.
Það var mikið um matarboðin maður minn!
Á jóladag rúlluðum við heim. Byrjaði að það var Hangikjöt í hádeginu hjá ömmu hans Sigga, síðan var kaffiboð hjá fjölskyldu pabba sigga, síðan var hreindýr um kvöldið heima að hætti Heimis! Þetta var ROSALEGT!

Áramótin voru svipuð. 20 manns í mat Heimir er að læra kokkinn þannig að það er óhætt að segja að þetta hafi verið rosalegt! 9 réttir og við vorum búin að borða um hálf 2!! Þetta var æðislegt.


Það var Mikið spilað við Arnar og Kareni. Rosalega skemmtilegt. Partý og co og undir sólinni sem er 100 ára spil rosalega skemmtlegt en óhætt að segja að það hafi gengið misvel!Koss
Það voru líka slegin met í sjúga blása hahahahahahahhahahaha....
karen ertu búin að æfa þig mikið?


 Fínt ár

lutti suður, fór í skóla, var dugleg að hreyfaheilbrigðari lífstíll, og bara allt í gúddí og hægt að segja að ég sé bara voða happy Glottandi.

Nú er bara málið að koma sér aftur í reglu, hætt að sofa fram eftir degi og fara bara snemma að sofa og drattast í ræktina! Get ekki beðið eftir að allt er komið á hreint því að ég sit t.d hérna í vinnunni dauðþreytt eftir að hafa sofið í 2-3 tíma í nótt!
Ekki er það gott!

Ég kom í vinnu sl föstudag og var ekkert alltof hress.
En ótrúlegt en satt þá var bara voðalega fínt í vinnunni og bara allir rosa góðu skapi og hafa semsagt komið vel út úr fríi Hlæjandi



Ég ákvað að hafa þetta samt bara stutt. Það er líka alltaf að hverfa það sem ég skrifa þannig að þetta gæti verið frekar skrýtið blogg.
En ég ætla að reyna að vera duglegri að skrifa á þessu ári þó að nennan sé ekki í lagi.

Hafið það sem allra best elskurnar og elskiði friðinn.
Ætla líka að setja inn myndir í kvöld eða á morgun.

Speki dagsins:

" Fall er fararheill, þú fetar veginn."