MYNDIR ÚR AKUREYRARFERÐINNI
Akureyrar ferðin frá A - Ö

Ég get svo svarið það að ég veit eiginlega ekki hvar ég á að byrja þannig... Ég reyni allavega að koma þessu öllu saman á blað.
Föstudagurinn:
Við lögðum á stað eitthvað um 6 leytið frá Eskifirði. Sigga og Magga ákváðu að stoppa í sjoppunni á Egilsstöðum frekast til lengi. Síðan héldum við í hann. Uppá Jökuldal byrjaði snjór, hálka og krapi. Manni var nú ekkert sama þannig að það var bara keyrt mjög hægt. Það var ekki gott færi fyrr en hjá mývatni þá var eiginlega allur snjórinn farinn. Við komum til AK eitthvað um 10 leytið. Þá mætti maður heim til Tottu túttu og Stínu. Við byrjuðum á því að háma í okkur pizzu og byrjuðum að fá okkur í glas. Totta tútta ákvað að keyra okkur og Sigga ákvað að vera heima að leggja sig.
Ég og Magga helltum í okkur. Fórum svo niður á Halló Akureyri. Kristín kom með okkur. Allir nema Totta Tútta fengu sér í glas. Við dönsuðum eitthvað þarna fórum svo á Kaffi Amor, dönsuðum þar og kíktum á stað sem heitir stað sem ég held að heitir Rocco er samt ekki viss. Þetta var alveg snilldar djamm. Keyrðum svo einhverjum vini Tottu Túttu eitthvað út í rassgat. Á einhver sveitabæ. Keyrðum út í buskann í örugglega 15 mín eða eitthvað.
Við komum heim kl 5 borðuðum pizzuna okkar og fórum svo í háttinn, smá erfiðleikar á leið í rúmið en allt tókst svo á endanum... ![]()
Laugadagurinn:
Við vöknuðum eitthvað um hádegisbilið. Mis- myglaðar allar. Við ákváðum að fara að fá okkur að borða í bakaríinu við brúnna. Það var þvi miður ekki pláss það var alveg pakkaður staðurinn. VIð héldum þá á Glerártorg og fengum okkur capes. Eða svona pönnuköku með grænmeti og kjukling inní. Mjög gott. Ég keypti mér eitt stykki tösku undir hlunka myndarvélina mína.
Svo var Sigga svo æst að fara í ljós að við ákváðum að panta tíma fyrir 4. Magga nennti ekki að fara í ljós ákvað að fara heim að leggja sig í staðinn. Víð fórum inn í einhverja raftækjabúð sem ég bara engan vegin man hvað heitir. Þar voru hressir strákar,bíóstólar við vorum ein sog hrávirði út um alla búð sitjandi hér og þar. Við vorum pínu þunnar en enginn eitthvað rosa. Fórum í ljós það var bara alveg helvíti fínt. Fórum svo allar heim að leggja okkur og fórum á lappir eitthvað um 5 leytið minnir mig. Fórum allar í sturtu. nei ekki saman ef þið haldið það.
Byrjað að fá sér smá áfengi og allir að taka sig til. Mála spasla greiða og ég veit ekki hvað. Ragga kom til okkar klukkan hálf 8.
Við vorum komnar niður á Friðri k V kl hálf 9 held ég.
Þessi staður er bara snilldi. Hann er mjög lítill en rosalega rómantískur. Við fórum í einhverja rétti sem heita Kúrme eða Curme eða eitthvað álíka. Það voru semsagt 6 réttir. En við höfðum ekki hugmynd um hvað við vorum að fara að borða. Mér fannst þetta alger snilld þessi matur!! Ég er ekki alveg að nenna að segja hvað þetta allt var. Kristín væri kannski til í að setja það í comment. Man ekki alveg hvað þetta heitir allt saman. Við fengum 5 flöskur með matnum 3 hvítvín og 2 rauðvín. En við vorum að borða til að verða 12. Við vorum allar farnar að finna aðeins á okkur. Við fórum niður á Kaffi Akureyri og dönsuðum smá. Héldum svo í Sjallan á Magna. Þetta var alveg mjög fínt allt saman. En mér finnst Magni samt ekki eins góður og hann var. Hann er komin með einhverja stjörnustæla sem er líka kannski skiljanlegt. En ég var líka að drepast í hnénu eftir föstudagskvöldið þannig að ég dansaði ekki mikið á laugadagskvöldinu.
Svo var ballið búið og við fórum út og ætluðum að fá okkur pizzu á Tikk takk. Big mistake því að það komust kannski svona 15 manns þarna inn en þarna var 40 manns að bíða eftir pizzu. En maður var orðin frekar pirraður þegar pizzan loksins kom. Þá tók við að fá taxa sem tók sinn tíma í snjókommu. Það er óhætt að segja að undir lokin hafi maður verið frekar pirraður en það rann af manni þegar maður fékk pizzuna! Ég Kristín og Magga tókum taxa heim. Þórdís var lengur niðrí bæ og fór í eitthvað partý. Sigga var komin heim með einhverjum Sigga vini sinum.
Mér var rosalega kalt!! ![]()
En ég þorði varla að kíkja á vísa reikninginn. En ég eyddi næstum 30.000. En þetat var alveg þess virði því að það er ekki eins og að maður geri þetta oft. Þannig að við ætlum að hafa þetta árlegan viðburð er það ekki stúlkur?
En svo var líka komin einhver umræða um einhvern matarklúbb..
Hvernig var það?
En eins og ég var búin að lofa að skrifa inn einhverja skandala og þeir munu koma nokkuð margir þannig :)
Skandall:
Einhverjir sungu hástöfum...
Einhver gerði eitthvað stórt á Mývatni...
Einhver var vonlaus DJ...
Einhverjir stóðu ekki við loforðið um bara íslenska tónlist...
Einhver keyrði mjög hægt...
Einhver var að verða brjálaður á flutningabílum...
Einhver var varla komin inn í hús fyrr en glasið var komið í hendi...
Einhver ákvað að vera Hilla heimalingur...
Einhver kom samt með.. í íþróttabuxum...
Einhver keyrði einhverjum heim...
Einhver var Ninni neikvæði á Föstudagskvöldi uppi á Kaffi Ak...
Einhver var hræddur við hvað hún væri að fara að borða...
Einhver hitti einhvern sem að hún var búin að fara í sleik við...
Einhver sem er hrísgrjón var að meika það á dansgólfinu með sólgleraugu...
Einhver var dómharður...
Einhver var ekki að meika eitthvað ljós...
Einhver var alltaf að beygja sig eftir beltinu...
Einhverjir voru alltaf á barnum...
Einhver fór í sleik fyrir utan skemmtistað...
Einhverjir voru að öskra á á eitthvað fólk hlauptu hlunkur og taktu taxa...
Einhverjir fóru á einhvern stað sem voru bara krakkar á aldrinum 16-19...
Einhver meikaði djammið eftir vinnu...
Einhverjir kláruðu næstum b vítamíns krukku...
Einhver lá á gólfinu...
Einhverjir voru flissandi eins og 7 ára smástelpur...
Einhver sendi sms í næsta herbergi...
Einhver hóstaði og hóstaði...
Einhver svaf í öllum fötunum...
Einhver svaf með málninguna á sér og vaknaði eins og drag drottning...
Einhver var víst vondur við alla þegar einhver var yngri...
Einhver man ekki eftir 1 atviki...
Einhver beit í tunguna á sér...
Einhver var úti langt fram eftir morgni...
Einhver hafði voða áhyggjur...
Einhver var með ömurlegan ding dong humor...
Einhver var búin að dreyfa fötunum sínum um gólfið...
Einhver reyndi að troða sínum ofan í tösku...
Einhver var með allan fata skápinn meðferðis...
Einhver keypti loftnet...
Einhver var alltaf í gammó við stígvéli...
Einhverjr borðuðu næstum allt upp á subway...
Einhver prumpaði þessu líka þvinkuprumpi á leiðinni austur...
Einhverjir urðu að hafa gluggana opna alla leið í Egilsstaði...
En þetta er orðið ágætt það gæti verið að ég myndi bæta við fleirum skandölum ef að ég man eitthvað meira en annas kveð ég bara í bili.
En svona verður maður ef að það gengur ekkert hjá manni.. Semsagt allt á afturfótunum:
Speki dagsins:
" Marge, it takes two to lie. One to lie, and one to listen."
(Homer simpson)
Akureyri city here we come...
Það er óhætt að segja að spenningurinn sé í hámarki. Það er loksins komið að því að við förum á Akureyri til tvillingana á morgun. Ég hlakka ekkert smá til ég get varla beðið. Þetta var svo löngu ákveðið, og loksins er komið að þessu.
Það er allt eitthvað svo skemmtilegt núna. Litla ástin mín hún Ísabella og Heimir eru að koma í dag. Þau verða komin svona um 2 leytið þannig að maður verður bara að flýta sér heim eftir vinnu og knúsa hana og kreista.
En ég hef komist af mjög leiðilegu og frekast til ógeðslegu.
En núna veit ég afhverju kínverskar kerlingar brosa aldrei og ég skil það vel.
Þær heita örugglega allar Pollýanna!!!
En hér er ástæða þess að kínverskar konur brosa aldrei:

OOOOOJJJJJJJJJJJJJJJJ þvílíktur VIBBI!! Guð verði kínverskum kerlingum náðugur!!!!!
En ég fór til Vilborgar sjúkraþjálfara á Nesk í gær. Hún er alveg æði. Hún nuddaði hnéð aðeins því að það er frekar mikil bólga í því. Hún setti hljóðbylgjur og Trimform tæki á hnéð og kenndi mer fullt af æfingum sem að ég á að vera dugleg að gera. Ég spurði hvort að hún gæti gefið mér von um að spila fótbolta á næsta ári og þá sagði hún að ef að ég væri varkár og skynsöm þá ætti ég að geta það. En þessi 2 orð eru ekki til í minni orðabók. En ef að ég get spilað aftur bolta,farið í blak og farið á skíði þá er uma ð gera að bæta þessum orðum inn sem fyrst. Það er að segja eftir þessa helgi.
Ég á að kæla hnéð á hverju kvöldi, svo á ég að gera æfingar í sundi og heima. Voandi gengur þetta bara hjá mér
Ég er ekki búin að drekka í 5 vikur!!! En ég ætla aðeins að svindla um helgina. Alveg þess virði. En ég a eftir að fá samviskubit en það verður bara að hafa það. Við ætlum að kaupa okkur áfengi áður en við förum á stað því að ef ske kynni að við myndum festast uppá fjöllum, þá er ágætt að hafa Bakkus með í för til að halda á okkur hita. Þannig áfengi og mikið að hlýjum fötum verða meðferðis.
En við munum leggja á stað kl 17:30 á morgun í roadtrippið :) Ég ætla að reyna að fá að keyra því að það er frekar mikil hálka og ég er mjög hrædd þegar svoleiðis er, Og þar sem að Sigga hefur ekki verið sú heppnasta í umferðinni er enn meiri ástæða að mig langar að keyra. Þið afsakið stelpur.
En Íslenskir diskar verða spilaðir alla leiðina. Því enginn fílar ekkert hahaha...... Ég mun koma með eitthvað íslenskt með mér.
Við munum svo mæta um 9 leytið í standandi partý á Ak.
En ég ætlaði bara svona rétt að kasta inn einni færslu svona áður en að ég fer yfir um úr spenningi og tryllingi hérna í vinnunni.
En Totta Tútta og Stína Fína við sjáumst annað kvöld.
Heyrustum kroppar...

Speki dagsnins:
" Margur er klár þó að hann hafi verið deli í mörg ár."
Konukvöldið mikla.

Þetta konukvöld var rosalega fínt bara. Það var smá vesen með að koma öllum þessum kerlingum í sæti þannig að maður færði sig svona 3 sinnum. En þessi Björk sem að var veislustjóri var ekkert smá fyndin.
En maturinn var rosalega góður. Fengum rækjur með salati í forrétt í aðalrétt var lambakjöt kartöflur, sósa og laukdrulla. Í eftirrétt fengum við ísköku og einhverja sósu.
Þetta var allt helvíti gott sko, nema að ég hefði viljað hafa grænmeti með matnum annað en bara laukinn. En annas var þetta bara rosalega flott allt saman.
En fólk fór fljótt að finna á sér. Flestir keyptu sér rauðvín eða hvítvín með matnum og flaskann kostaði 3000 kr takk fyrir pent. Ég var að keyra og ætlaði bara að fá mér vatn!! Nei nei það kostaði einhvern 200krónur!!! Ég fór með glasið mitt til Kristínar og hún náði í vatn handa mér. Seinna um kvöldið fór ég bara út í bíl og náði mér í að drekka. Ég ætlaði sko ekki að fara að borga 200 kr fyrir vatn og 300kr fyrir gos í glasi ekki einu sinni 1/2 líter!! Ég veit nískan alveg að fara með mig en svona er þetta bara.
Það voru alls skonar leikir uppá einhverja vinninga og ég tala ú ekki um tískusýninguna.
Það stóðu allir sig geggjað vel!! Ekkert smá flott föt sem að stelpurnar okkar og Jói voru í. En erum við það að við erum komnar með módel!! Konný fór þarna alveg á kostur og var alveg stór glæsileg!!!
Eftir hálfa flösku voru allir farnir að tala frekar mikið þannig að þið getið ímyndað ykkur að vera edrú á meðal 400 kerlinga og reyna að hlusta á veislustjórann!! Ekki fræðilegur!
Eftir það var farið að rýma borðin þannig að maður beið bara, svo kom tónlistin og maður tók smá dans þarna. Síðan kom gaurinn hann Magni með sólgleraugun og var rosa flottur. En það var mikið af eldra fólki þarna þannig að það var rosalega mikið af rólegum lögum og þegar maður er edrú þarf maður fjörug lög til að vera á gólfinu þannig að þetta var ekki alveg að gera sig. En ég gat svosem ekki mikið dansað, reyndi samt en daginn eftir var ég STOKK bólgin á hnénu!! Ég er orðin ekkert smá pirruð á þessu!! Ég er að fara í sjúkraþjálfun næsta miðvikudag á Nesk. Fólk var misfullt þarna.
En ég hélt heim á leið eitthvað um kl 04:00.
Það er bara gleði framundan hjá mér.
*Á fimmtudaginn kemur litli engillinn minn austur Ísabella Danía og verður hjá okkur fram að mánaðamótum, þannig að það verður fjör hjá okkur.
*Síðan næstu helgi á föstudaginn kl 5-6 leggjum við á stað i road trip til Akureyrar að borða góðan mat og drekka eitthvað áfengi og fara aftur á ball með Magna. Hlakka bara til
* Svo 2. Nóv þá kemur Siggilingur austur og verður hjá mér til 7.
* 11. Nóv förum við kannski suður í Stúdent veislu hjá Önnu Gullu.
Margt að gerast á næstu dögum og vikum þannig að það þýðir ekkert annað að vera í góðu skapi og brosa út í annað. Það þýðir ekki að vera Villa Vonlausa alla daga.
Ég er bara að vinna núna og það er svona smá að gera en yfirleitt eru mánudagar mjög rólegir.
Ég ætla að koma með smá skandala núna fyrst að það var ball
Skandall:
Einhver var með óþarfa plammeringar...
Einhver talaði fyrir allan peninginn...
Einhver var ofurölvi...
Einhver hnerraði á borðhaldinu...
Einhver var í prinsessukjól fyrir allan peninginn...
Einhver var í alltof litlu pilsi...
Einhver dansaði alltaf uppá öllu...
Einhver fór úr skónum og aftur i þá...
Einhver var með rosa pósur...
Einhver var eins og Páll Óskar...
Einhverjir voru svo sveittir...
Einhver öskraði: ÞAÐ MÁ EKKI REYKJA!...
Einhver var að týna dósir...
Einhver var alltaf að bögga einhvern...
Einhver týndi símanum sínum...
Einhver týndi töskunni hjá einhverjum...
Einhverjir voru eins klæddir...
Einhver er að hverfa...
Einhver var hot fyrir einhverjum..
Einhver á kærustu...
Einhver fékk boð í 3some...
Einhver var að týna demanta handa einhverjum...
Einhver pissaði næstum á sig...
Einhver ætlaði að fá far...
Einhverjir voru að slá einhvern...
Einhver meiddi sig í auganu...
Einhver fékk sms en kunni ekki á símann...
Einhver ráfaði um svæðið...
Einhver hélt í hendina á einhverjum...
Einhver hefur þekkt einhvern lengur en flestir...
Einhverjum fannst norðurljósin og stjörnurnar FALLEGASTAR Í HEIMI...
Einhver var að sálgreina einhvern...
Einhver var að líkja einhverjum við einhvern...
Þetta er orðið ágætt í bili. En ég mun pottþétt skrifa alveg helling eftir næstu helgi

Speki dagsins:
" Það er auðveldara að sjá flísina í augum annarra en að sjá bjálkann í sínum eigin."
Arnarsjón :)
Það var ekkert smá gott og gaman að sjá Siggaling þegar ég kom suður.
Ég er búin að fara í Leaser aðgerðina. Hún gekk bara rosalega vel. Ég fór í hana á fimmtudagsmorgun og ég sá allt í móðu það sem eftir lifði dags. Dagurinn eftir var eitthvað skýrari, en ég var mjög þreytt í augunum... Ef að ég horfði á sjónvarpið og eins ef að það var mikið ljós í kring um mig var ég mjög þreytt. En með hverjum degi sé ég skýrar og skýrar
Ég fór bara snemma að sofa á fimmtudags og fösudags kvöld. Síðan var okkur boðið í mat til Heimis og Önnu á laugadagskvöldinu. Mjög gaman.
Ísabella var í S-inu sínu. Hún er svo mikil mús, mig langar bara að hafa hana hjá mér!!! En hún er mjög líkalega að fara að koma og vera hjá okkur bráðlega í 1-2 vikur það verður sko gaman
En ég keypti mér frekast til lítið af fötum.
Ég keypti mér síðan bol svartan, tiger leggings og einn annan bol. Það var frekar lélegt!!!
Anna og Sandra systur mínar eru útí London að meika það. Báðar með vinnu og eru að gera það gott í UK. Þær búa með honum yndifagra Venna, en þær eru greinilega búnar að messa eitthvað í honum eins og sést á myndunum. Þau taka smá trylling á djömmum og mig langar að setja inn hérna 2 myndir af þeim.

Hérna eru semsagt Anna og Venni í lest á leið niður í bæ.... :)

Og svona fer Sandra María með stráka ef þeir hlíða ekki :) :)
Sakna ykkar elskurnar mínar :)
En það er margt framundan og styttist óðum. Konukvöld á laugadaginn og svo helgin eftir förum við til Akureyrar að djamma og þá ætla ég líklega að svindla pínu :)
En þetta er eitthvað svo skemmtilegt þannig að það er margt að hlakka til.
Ég var að horfa á mynd í gær sem heitir Take the lead. Vinur minn var að leika í myndinni. Mjög fín mynd. En hérna kemur besti vinur minn

Sæti maður
Þar sem að það er lítið að frétta af mér... ekkert búið að gerast og ég er ekkert búin að gera þannig að ég kveð að sinni.
Speki dagsins:
" I made decisions that i regret, and i took them as learning experiences... I´m human, not perfect, like anybody else."

Laser aðgerð og Reykjavíkurferð.
Ég ákvað að skella inn hérna einu bloggi fyrir helgina. Svona áður en að líf mitt breytist til hins betra.
Ég verð mætt hérna galvösk á mánudaginn með vonandi 100% sjón. Ég held að það verði mjög skrýtið að vakna og sjá ekki allt í móðu. Ég er farin að hlakka til.... samt kvíðin
En ég hringdi suður í gær og spurði konuna hvort að ég gæti ekki örugglega fengið 2 kæruleysis töflur því að ég væri orðin frekar mikið stressuð. Hún sagði að þau myndu bara dæma það. En það er verið að fara að sýna laser aðgerð í sjónvarpinu í kvöl í ísland í dag. Þannig að maður verður að sjá þetta, þrátt fyrir að mig langi það ekkert rosalega.
En ég hringdi til akureyrar og fékk að tala við lækninn sem að skar mig upp, því að ef að ég hreyfi mig eitthvað. Ég tabbaði t.d inn í sundlaug um daginn og fór að synda og daginn eftir var ég stokkbólgin! Læknirinn sagði að ég þyrfti að fara til sjúkraþjálfara og styrkja krossböndin því að þau væru á síðasta snúningi. Ég þarf mjög líklega að fara aftur í aðgerð! En þetta þýðir að það er enginn fótbolti hjá mér næstu mánuðina!!! ![]()
Ég er mjöög sár yfir því!! ![]()
En svona er lífið í dag....
Ég er nú samt heppnari en hann Jimmy greyið....
Það hefur ekki margt á mína daga drifið núna undanfarið. Sundlaugin er búin að vera lokuð í 8 daga þannig að maður er ekkert búinn að vera að svamla. Bara gufa og að lyfta.
En um síðustu helgi þá var ekki mikið gert. Eins og þið flest vitið þá er ég hætt að drekka í bili, ákvað það
. En ég ætla að detta íþað helgina 21 þegar við förum til tvillinga á Akureyri. ![]()
Á föstudaginn var farið í partý heim til Sölva í smá tíma og síðan var haldið út í Valhöll á karoki kvöld. Það var frekar spaugilegt að sjá :)
En síðan á laugadaginn ætlaði ég bara að vera róleg og fór í bíó og var róleg fór snemma í háttinn. Ég nennti bara engan veginn að keyra á Nesk og koma heim kl 5! Þannig að ég var frekar leiðileg en svona er lífið. ![]()
Ég hlakka samt ekkert smá mikið til að fara suður og hitta kæró og vonandi hitti ég eitthvað af vinunum, förum á kaffihús eða eitthvað. Það er að segja ef ég verð ekki að drepast í augunum og ef ég þarf ekki að vera með sólgleraugu sem eru yfir allt andlitið!!!![]()
En ég hef ákveðið að koma með smá skandala.... ![]()
Skandall
Einhver drakk rauðvín mjög hratt...
Einhver setti tópast í vatnsglas og dreakk...
Einhver var farin á trúnó mjög snemma...
Einhver blés á kerti og allt kertavaxið fór á tölvuna hjá einhverjum...
Einhver var að kroppa kertavax fram eftir nóttu...
Einhver var með kertavax á fötunum sínum...
Einhver fékk kertavax á gleraugun sín...
Einhver var með sögustund...
Einhverjir voru að þræta...
Einhverjir voru í eldhúspartýi...
Einhver hellti niður á einhvern...
Einhver hellti aftur niður á einhvern...
Einhver hellti í 3x á sama manninn...
Einhver ætlaði ekki heim...
Einhverjr fóru heim kl hálf 2...
Einhver var Finna Fúla og sat frammi...
Einhver var á trúnó...
Einhver var í hláturskasti en vissi ekki afhverju...
Einhver fór að syngja....
Einhver hætti ekkert að syngja...
Einhver var farinn að berjast um mígrafoninn...
Einhver hljóp á stað og datt næstum því...
Einhver fór án þess að kveðja kóng né presti...
Einhver var svo þunnur að allt var vonlaust...
Einhver fór og keypti nammi fyrir 700kr...
Einhverjir voru að drekka í gula partý húsinu...
Einhverjir voru í singstar...
Einhver hafði aldrei fengið fullnæðingu...
Einhverjr fóru á nesk...
Einhver fékk heimboð...
Einhver fékk heimboð og þáði það...
Einhverjum fannst þetta fín helgi...
Einhver var þunnnurr....
En þetta eru ágætir skandalar í bili :)
Speki dagsins:
" If swimming is so good for you why the fuck are whales so fat?"
Eigiði góða helgi kroppar.....

