Jólin :)
29. nóvember 2006 klukkan 17:20

Það er búið að vera vont veður undanfarna daga en nú er farið að rigna, sem er kannski alveg ágætt því að það var orðið svo ógeðslega hált!
En við erum að tala um það að ég er búin að vera að bera 50 möppur á milli staða og allir voru fyrir mér þannig að ég hugsaði að ég gæti staðið hent möppunum frá mér og öskrað að það ættu allir að hætta að vera fyrir mér eða ná í ipodinn og hlusta á jólalög og ég er bara ekki frá því að ég sé komin í feikna jólaskap.

Ég er bara farin að hlakka til jólanna. Síðustu jól voru vestu jól lífs míns! Ég var að vinna alla daga meira að segja aðfangadag líka! En ég hætti að vinna 29. desember í fyrra. En núna um jólin þá fer ég í jólafrí 22 des. Síðasti dagurinn minn þá.

Ég var líka heima um daginn að láta mér leiðast og ákvað að skellta dvd í tækið og horfði á uppáhalds myndina mína. Hef örugglega séð hana svona 15 sinnum. En það er: Love actually!!!!! Endalaust góð!!!!!

Það er að fara að verða jólahlaðborð hjá Bechtel um helgina þannig að maður skellir sér á það en ég held að ég drekki nú ekki núna því að sunnudagurinn síðasti var alveg ónýtur í þvinnku!!!!! Þannig að ég verð bara róleg!
En mig langaði bara að setja eitthvað hérna inn... Mér leiðist nefla svolítið í vinnunni en er komin með verkefni þannig að það er kominn tími til að drattast til að fara að vinna.
Eitt enn. Ég ætlaði nú aldeilis að fara að kaupa mér kjól hjá Möggu í pex og var búin að hlakka til að máta kjólinn. En nei nei var hann ekki bara úr hræðilegu efni og var bara ekkert flottur. Ég var alveg hundfúl því að ég var svo spennt!
En hérna er uppskift af jólaglöggi hahahahhaha....
Pólskt jólaglögg....
Uppskrift:
1 líter vodka
1 rúsína.
Skreytt með greni.
Ég kem ekkert suður fyrir jólin....

Speki dagsins:
" Enginn verður óbarinn biskup."
(bara pólverjar)
Ballið, slagsmál og ég veit ekki hvað.
27. nóvember 2006 klukkan 17:08

Það er óhætt að segja að ég hafi vaknað svona á sunnudaginn!!!
Ég fór á ball og það var alveg helvíti skemmtilegt!
Ég og Magga fórum heim til Röggu og Jóu og vorum þar að drekka og setja tussuhnúta í hárið á mér og ég veit ekki hvað. hahahaha :)
En svo var haldið út í Valhöll með jólalögin í botni og 4 kerlingar að reyna að syngja. Diddi greyið fór heim með skottið á milli lappana og var a furða sig á þessu unga fólki í dag. Jæja okay ekki alveg en samt. Við erum nú svo skemmtilegar að það er allt í lagi.
Það var bara beint að dansa og þar var ég bara mest allt kvöldið.
Það voru víst brjáluð slagsmál þarna! Hópslagsmál. Pólverjar vs Íslendingum Veit samt ekki alveg afhverju. Frekar leiðilegt mál en þetta er víst svona í dag. En ég verð nú að segja það að það var HELLINGUR af Pólverjum þarna. Örugglega fleiri Póverjar heldur en við en það þarf samt ekkert að berja þessi grey.
Síðan var einhver voða skemmtilegur leikur hjá pollunum það var glasa kast! Það var allavega 4 hennt út fyrir 12 og síðan voru örugglega svona 40 manns hennt út! Ég var bara upp við sviðið að dansa þannig að ég sá bara EKKI NEITT!
Hélt að ég hefi verið að koma úr leaser aðgerð en greinilega klikkaði eitthvað

Varð bara að setja þessa mynd inn
En ég er að spá í að setja inn skandala svona bara í tilefni þess að ég var að djamma og það var hellingur sem að skeði og allt var crazy þannig! Here you go!
Skandall:
Einhver sleppti ekki migrafoninum...
Einhver var í karoki allt kvöldið...
Einhver var að syngja ástarsöngva til einhver...
Einhver var aumingja góður og bauð einhverjum að sitja hjá okkur...
Einhver eyðilagði einhvern gaur...
Einhver varð villi og langaði heim...
Einhver bjargaði samt málunum..
Einhver hélt samt áfram að syngja...
Einhver sagði: gaman þegar fólk kann ekki að skammast sín...
Einhver söng eins og engill...
Einhver keyrði einhverjum heim...
Einhver gleymdi einhverjum...
Einhverjir slúðruðu og slúðruðu...
Einhverjir hlustuðu á jólalög...
Einhver fór að pissa í 20 mín..
Einhver fór að skæla...
Einhver vildi ekki vera aðal gaurinn...
Einhver gleymdi öllu og kom að dansa...
Einhverjar voru alltaf á barnum...
Einhverjir fóru að slást...
Eimhver er með glóðurauga á BÁÐUM...
Einhver er með kyrkingarfar á hálsinum...
Einhverjum langaði að rífa kjaft...
Einhver fór í sleik við einhvern á barnum...
Einhver var tekinn á teppið...
Einhver stal töskunni hjá einhverjum...
Einhverjir voru að hlýja sér inn í hraðbankanum...
Einhver var fastur á Eskifirði...
Einhver tók einhvern með sér heim...
Einhver fór heim með einhverjum...
Einhver veit ekki neitt...
Einhver varð svooo þunnur...
Einhver var með fastan ananas í hálsinum...
Einhver var frá IRELAND!! :)
Einhver sá ekkert...
En mig langar bara að segja að þetta hafi verið helvíti skemmtileg helgi fyrir utan smá atvik og vil bara þakka og klappa fyrir þeim sem að gerðu mína helgi svona skemmtilega. Taki þeir það til sín sem að eiga það... :*

Speki dagsins:
" Like a sand through the hourglass, so are the days of our lives."
Helgin.
22. nóvember 2006 klukkan 18:54

Erum við að tala um það að mér drepleiðist í vinnunni. Þetta er orðið frekar fúlt það er ekki svo mikið að gera hjá mér. Ég er bara að blogga og dunda mér alveg í næstum 2 tíma af vinnudeginum! Ekki skemmtilegt að hanga svona mikið!
Sem betur fer er ég að fara í sjúkraþjálfun á eftir þannig að það er svo sem ekki mikið eftir.
Ég var að velta því fyrir mér hvort einhver hafði ætlað sér að djamma um helgina...... Mér er farið að langa frekar mikið að djamm en veit ekki hvort að það sé eitthvað að gerast hérna heima. En það verður bara að vera því annas fer ég ein á kojufyllerí. Eins og sumir gerðu um daganna
Ragga ertu kannski memm og magga?
Ég er að spá í að fara að vinna kannski á pizunni til að ná mér í einhvern auka pening. Ég hef í rauninni ekkert betra að gera sko. Það kemur allt í ljós.

En það sem að ég hef lítið að segja í augnablikinu þá ætla ég ekkert að hafa þetta miki lengra. Þannig að ég kveð að sinni.
L8TER
Speki dagsins:
" Frelsi er hugar ástand."
Helgin fór í ekki neitt...
20. nóvember 2006 klukkan 17:04
1. Jæja það er óhætt að segja að þessi helgi hafi ekki verið upp á marga fiska!!Ég geri nákvæmlega ekki neitt. Ég horfði bara á sjónvarpið og fór í heimsókn til Eyglóar og Jonna.
Bjarki litli frændi minn svaf reyndar hjá mér á föstudags kvöld þannig að það var voðalega gott að kúra í hann. Hann er svo mikil mús
En ég hringdi í Nikku hún var að passa... Kristín var að vinna á barnum... Magga var að djamma í RVK...Gáði reyndar ekki að henni Röggu elskunni... Hún gleymist svona annað slagið þar sem að hún er orðin Reyðfirðingur. En efast um að það hafi eitthvað verið að gerast á Reyðarfirði.
En það er búið að vera ógeðslegt veður hérna undan farið misseri. En það er nú allt að lagast. En ég get alveg sagt það að ég er orðin rosalega orðin þreytt á því að vera hérna fyrir austan en ætli maður verði ekki að klára þetta helvíti fram í apríl... Þá fara vinirnir að týnast austur. Fótboltinn tekur við, hversu mikið ég get verið með veit ég ekki en ég verð þá á hliðarlínunni að öskra
En ég hef voðalega lítið að segja þar sem að það er ekkert hægt að gera hérna fyrir austan....
En ég ætla að koma með skemmtilegan leik hérna núna hahaah.... Vonandi svara sem flestir....

1. miðnafnið þitt:
2. Aldur:
3. Single or Taken:
4. Uppáhalds bíómynd:
5. Uppáhalds lag:
6. Uppáhaldshljómsveit:
7. Dirty or Clean:
8. Tattoo eða göt:
9. Þekkjumst við persónulega?
10. Hver er tilgangurinn með lífinu?
11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum?
12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?
13. Besta minningin þín um okkur?
14. Myndir þú gefa mér nýra?
15. Segðu eitthvað skrýtið um þig:
16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veik?
17. Getum við hist og bakað köku?
18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?
19. Talaru eða hefuru talað illa um mig?
20. Finnst þér ég góð manneskja?
21. Myndir þú kerya með mér hringinn í kringum landið?
22. Finnst þér ég aðlaðandi?
23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari?
24. Í hverju sefuru?
25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?
26. Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér?
27. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera?
28. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út?

En ég hef ekkert að gera í vinnunni bossinn minn er í fríi og einhver gella sem tók við af henni og hún veit rosalega lítið þannig að ég hef lítið sem ekkert að gera. En ég ætla ekki að hafa þetta lengra.
Þannig að ég kveð að sinni :)

Speki dagsins:
"Gerðu ekki lítið úr draumum annarra, Þínir eru ekkert gáfulegri, það sýnir öfundsýki og barnaskap. Reyndu að samgleðjast frekar."
Vesen og aftur vesen...
16. nóvember 2006 klukkan 17:40
Guuddd burning...
Jæja það er loksins komið að því að ég blogga eitthvað!! Það er búið að vera allt í rugli í mínu lífi núna.. Ég var flutt á Neskaupsstað á spítalann var þar í 2 nætur og fór svo suður í einhverjar rannsóknir!! Því að það var eins og að ég vræi komin 8 mánuði á leið. Útþanin.
Það kom í ljós að ég var með sýkingu í kviðarholinu. Þetta er aukaverkannir af sprautunni. 0,1 % sem fá aukaverkannir og auðvitað er ég þetta 0,1 prósent! Ekkert smá leiðilegt. Ég er búin að átta mig á því að mér var ekki gefin heilsa í fæðingagjöf.

En ég mátti síðan ekki vinna í heila viku. Þannig að ég skellti mér bara suður til Siggalings og það var voðalega ljúft að vera hjá honum. Hitti líka Heimi bróðir, Önnu og litla krílið mitt. Ég Sara og Sonja fórum á kaffihús á fimmtudeginum það var alveg æðislegt Ingó úr Idolinu var að spila á gítar og syngja. Langt síðan að ég hef verið í skemmtilegu gítar partý. Ég söng þarna hástöfum.
Anna Gulla var að útskrifast síðustu helgi, Búin með snyrtifræðina
Maður verður greinilega vel snyrtur þegar maður kíkir í borgina. Þau héldu veislu, það var ekkert smá gott að borða. Heimir var að elda. Humarsúpa sem ég hefði getað þambað. Kjúklingur, tígrisrækja/súsí. Hellingur af góðum mat. Það var eitthvað drukkið þarna, rautt, hvítt og bjór. Þetta var bara alveg æðisleg veisla.
Það er frekar súrt að vera komin heim. Hefði bara viljað vera fyrir sunnan hjá kæró og vinunnum. Mig langar rosalega að flytja eftir áramót en það er bara rugl í rauninni. Því þá færi ég suður að leita mér að vinnu, myndi vinna í 5 mánuði koma heim, leita mér að vinnu, fara síðan aftur suður eftir sumarið og leita mér aftur að vinnu. Þannig að ég ætla bara að vera hérna í þessari vinnu þanga til í april og finna mér eitthvað sumarstarf og fara svo suður. Held að það sé besta planið. Ég myndi líka ekkert geta sparað í RVK, myndi eyða öllu í föt. Bara að vera Pollýanna fram í apríl!

En anans er bara allt gott að frétta. Er byrjuð í ræktinni og í sundi á fullu. Er að drepast úr harðsperrum!! En það er blakmót þarnæstu helgi.. Ég get ekki verið með.
Ætla að fara að horfa á, þó að það sé leiðilegt að geta ekki verið með.
Semí brandari:
Það var lítill strákur sem að var farinn að fá standpínu á morgnanna og hann spurði mömmu sína: Mamma.. við strákarnir fáum standara hvað fáið þið stelpurnar?
Mamman: Við fáum nú eiginlega ekki neitt...
Strákurinn: jjaaaá okayy.. fáið þið bara kannski störu???
BWHAHAHAHA..
Mér fannst þetta allavega ógeðslega fyndið!!
En það er skítakuldi hérna núna -8 stiga frost. Ég fór í snjóbuxum og öllum pakkanum í vinnu í morgun, var eins og eskimói. Ógeðs veður. Ég er svo mikil kuldaskræfa.

En jæja ég ætla að halda áfram að vinna. Varð bara að blogga því að það er rosalega langt síðan að ég bloggaði.
En hafiði það gott kroppar.
Speki dagsins:
" Well, you tried your best and failed miserably. So the lesson is never try."