Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Hulda Björk Haraldsdóttir
  • Staður: Eskifjörður
  • Atvinna: Reikningagerð Flytjandi
  • Hjúskaparstaða: Í sambandi
  • Um mig: Er að vinna og er í skóla. Er í FÁ á Nuddbraut. Hef helling að gera :)

Auglýsing

Klukkan

Atburðarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

Á ég að læsa síðunni minni?

Innskráningar kubbur

Allt á suðupunkti.

20. maí 2007 klukkan 02:25

Það er ekki hægt að segja að ég hhafi bætt bloggið hjá mér. Alltaf það sama og lítill tími!

En það er svo margt búið að gerast að ég veit í rauninni ekki hvar ég á að byrja!

Ég er að spá í að koma með nokkra punkta bara.....

* Ég fór til Keflavíkur að djamma með söndru, önnu og co, þær systur komu í viku. Mjög gaman það vantar ekki en ég er farin að langa að fá þær heim!!!

* Ég fór á Grundafjörð með Guðrúnu og Kömmu við vorum að heimsækja Ingibjörgu. Við erum semsagt allar að vinna sama. Fórum í ofurpott með bubbles og geggjuðum lögum!! Fórum á Sixties ball, nokkuð nett. Kvöldið endaði samt í rugli. Ég verð greinilega að fara að kenna þessu liði að drekka, virtist allavega enginn kunna það þetta kvöld nema ég.!

* Mamma kom suður að keppa á öldungamótinu í blaki, ég var mjöööggg veik langaði endalaust að vera með. Horfði á alla leikina nema 1. Gamla ákvað að leyfa mér að koma með á lokahófið þannig að það var stútað einni hvítvínflösku á no time og svo var farið í bjórin og tópasið. Hitti Huldu Maríu sem ég var alltaf að leika við þegar ég var lítil! Mjög gaman, Mæti galvösk á næsta ári á Ísafjörð engin spurning!!!

* Ég veit hvað þið hugsið... Hva... gellan bara brjálað að djamma án karlsins... Málið er bara að hann er orðinn svo gamall og grár að hann nennti ekki með. Nei nei málið er að þetta voru allt stelpuferðir! Það er ekki eins og að maður hafi djammað mikið hérna í rvk það er svo drepleiðilegt! Vil bara lenda í góðu partý eða spila í góðra vina hópi! Hef djammað 6 sinnum semsagt með öllum þessum skiptum! Er búin að vera ótrúlega þæg eða réttara sagt mikið að gera.

* Alltaf brjálað að gera í vinnunni, ég reyndar sleppti úr viku núna um daginn fór í einhverja helv... magaspeglun.... ekki mjög skemmtilegt. er bara spítala matur. En það er allavega mjög líklega komin niðurstaða í mín mál...

* Hnéð er alveg úti að skíta er alltaf í sjúkraþjálfun 3x í viku og ekkert gengur. Lítið sem ekkert sem að ég get gert þannig að allt í hassi. En það verður tekið aldeilis á því í sumar. Ætla að hjóla uppá Hólmatind ef ég þarf þess!!!  Er búin líka að fara í eitthvað bowen... sem er rosaskrýtið... getið kíkt á þetta. www.bowentaekni.com.

* Ég fór á fótboltaleik hjá Fjarðabyggð og Fjölni og auðvitað unnum við en ekki hvað!! En mér fannst þetta frekar hægur bolti og eiginlega leiðilegt að horfa á hann en samt var ég að deyja því að ég sé hversu miklu ég er að missa af í sumar. Spurning hvort að maður mæti góður á næsta ári....

* Afi fékk hjartaáfall 15. maí!!!! ÉG hef aldrei verið svona hrædd í lífinu!!! Hélt að ég væri að missa hann.... Sjúkrabíll,sjúkraflug,sjúkrabíll,landsspítali,hjartaþræðing,og smá rólegheit.... gerðist allt rosalega hratt!!! En karlinn er seigur inn við bein og stendur allaf upp aftur það er líka eins gott fyrir hann!!!
Þetta skeði þarna þriðjudaginn 15 og ég var að fara á tónleika kl 8. Þetta skeði allt kl 7 þá var afi á leiðinni suður. Þannig að ég fór ekki á tónleika! Hefði ekki viljað vera þar á þessari stundu en mér var samt búið að hlakka svoooooo til en svona er lífið víst....

* Haukur Eron braggast svona ótrúlega vel. Rosalega vær alveg eins og frænka sín. Ótrúlega fallegur líka eins og ég hehehehehe......

* Nú eru 1-3 dagar þanga til að ég fer heim á Eskifjörð og ég get svo svarið fyrir það að ég get hreinlega ekki beðið. Siggi er farinn. Hann fór á Miðvikudaginn. Þannig ef að einhverjum vill keyra með mér austur er það mjög velkomið. Ég er nefla alveg komin með upp í kok af Reykjavík!!!! Og ókurteisum reykvíkingum!!

* það er ekki hægt að segja að það verði mikið djammað í sumar þar sem að það er búið að loka Valhöll!!! Hvað er það spyr ég nú bara!!! Allt í rugli... En mér er svo sem sama, bara að komast í sveita sæluna!! Verðum víst að heimsækja Héraðsbúa til að fara á djammið ÞVÍ MIÐUR!!!

* Ég vil biðja vini mína hérna í RVK, KEFL,DAMN,LOND,ESK,AK. afsökunar á því hvað ég hef verið löt við að heimsækja þá. Eða fara út... Eins og þið vitið hef ég ekki mesta máttinn og hef mikið að gera í vinnunni... Ekki halda að þó ég hafi ekki mikið samband þá hugsa ég mikið til ykkar og elska ykkur alltaf!!

* Ég er að spá í að fara að slá botn í þetta langa langa mail mitt og fara að sofa í hausinn á mér... góða nótt og dreymi ykkur vel elskurnar!!

Speki dagsins:

"Rangt er alltaf rangt, Það er rétt.

Kominn hellingur af myndum inn á þessa blessuðu síðu. Skoðið og skemmtið ykkur ;)