Smá blogg í tilefni að yndislegu sumri!
18. júlí 2007 klukkan 15:26
Jæja góðir hálsar.
Vá ég get ekki sagt annað en að sumarið sé búið að fljúga áfram.
það er búið að vera alveg yndislegt veður hérna fyrir austan! Ég get samt ekki sagt að ég hafi verið dugleg að liggja í sólbaði! geri eitthvað minna að því!
Ég og Siggi fórum á ættarmót pabba hans megin síðustu helgi í Varmaland rétt hjá Bifröst það var rosalega fín og fínasta fjölskylda. Það var samt frekar mikill vinur þarna. Það voru engin tré eða fjall sem að myndaðist eitthvað skjól! Við settum bara upp sóltjald þannig að við vorum búin að girða allt í kring um fellihýsið til að liggja í sólinni.
Það var drukkið rauðvín með matnum síðan var drukkið Stro og Bacardi rass, það var ekkert leiðilegt! En dagurinn eftir var frekar leiðilegur ég var endalaust þunn!!!
Siggi keyrði báðar leiðar, ég svaf mest alla leiðina aftur heim.
Það verður annað ættarmót þarnæstu helgi hjá mömmu Sigga. Rosalega mikið fyrir ættina :) En þá kemur fullt af fólki sem að maður þekkir, En það verður nú bara á Reyðarfirði þannig að það verður ljúft að þurfa ekki að ferðast langt. kemur í ljós hvernig það verður :)
Ég verð nú bara að monta mig á veðrinu hérna fyrir austan!
Yndislegt alveg! Alltaf sól og sumarblíða!!!!!
Ég er alltaf að vinna á Egilsstöðum hjá Eimskip þar. Því að það vantaði....
Ég held að ég sé ekkert á leiðinni að vinna aftur á Eskifirði!
Ég lennti í þeim ÖMURLEGHEITUM!! að vera tekin á dalnum!!!
Var tekin á 105 sem að lækkar niður í 101. Þarf að borga 30.000 þúsund!!! En ef ég borga innan 10 daga þá borga ég 22.500 krónur takk fyrir!!!!
En ég skil þetta ekki alveg það er ekki eins og að ég hafi verið í einhverjum hraða akstri! Við erum líka að tala um það að þetta er orðin endalaust dýrt!!!
Ég avr tekin á Reykjanesbrautinni fyrir 3-4 árum síðan og þá var ég sko á 125km og þurfti að borga einhverja 20.000. Comon 105km er enginn hraði!
Allavega er ég búin að vera í þunglyndi yfir því að henda þessum blóðuga pening út um gluggann!!!
Var að spá í að reyna við helvítið en þegar hann tók fram að það væri bæði myndavél og upptökutæki þá snarhætti ég við það!!!
Ætli þeir séu bara ekki að vinna vinnuna sína annað en ég er að gera í augnablikinu!
Fótboltinn gengur ekki eins og ætlað væri kepptum við hött í gær og töpuðum 2-0 þannig að það er ekki alveg að gera sig! En næsti leikur er 28 júlí við Tindastól.
Við erum búnar að vinna 1 leik sem var við Hamrana. 3-1 það var alveg rosalega skemmtilegt en síðan höfum við gert eitt jafntefli 1-1 við Hött.
Annas erum við búnar að tapa öllu öðru ekki alveg verið okkar sumar en þetta er svosem ekki búið enn :)
Ég held að þetta blogg sé bara fyrir þennan og næstum allan næsta mánuð því að mér finnst voðalega leiðilegt að blogga í góðu veðri!!!
Eigiði gott sumar elskurnar og verið góð hvert við annað!
Speki dagsins:
"Andrés Önd er bannaður í Finnlandi því að hann er ekki í buxum."