Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Hulda Björk Haraldsdóttir
  • Staður: Eskifjörður
  • Atvinna: Reikningagerð Flytjandi
  • Hjúskaparstaða: Í sambandi
  • Um mig: Er að vinna og er í skóla. Er í FÁ á Nuddbraut. Hef helling að gera :)

Auglýsing

Klukkan

Atburðarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

Á ég að læsa síðunni minni?

Innskráningar kubbur

Komin tími aftur á Reykjavíkina! :(

19. ágúst 2008 klukkan 10:13
Ég veit ekki hvað verður um þetta blogg núna þegar allt fer á fullt.
Ég ætla að blogga núna og segja í fáum orðum hvernig sumarið var.

Ég vann hjá Flytjanda á Reyðarfirði með tengdó, það var bara rosalega fínt, skellti mér með þeim heim í hádeginu og fékk mér að borða. Alltaf framreyddur fiskur AlA ERNA. Ég slæ nú ekki hendina á móti fiski! Ætli þau séu ekki komin með nett leið á mér þar sem að við erum saman öllum stundum hahaha.... En ég hafi gaman af því.

Ég var aðeins að Hjálpa Kidda í Valhöll þegar það vantaði. Það var fínt, enda er Kiddi óttarleg perla. Ekki vantaði allavega gleðina hjá honum. Glottandi

Við fórum á ættarmót hjá fjölskylduni hans pabba. Að venju var tekið á því og skemmtilegri fjölskyldu er ekki hægt að finna. Þetta fólk fer með því hugarfari að skemmta sér. Það er sko gert og gert almennilega!! Koss



Guðrún og Ranni elskurnar komu að heimsækja okkur Sigga um Versló. Þau voru frá föst-mánud. Það var æðislegt að fá þau! Það er sko óhætt að segja að þau keyri ísland á enda til að hitta okkur. Þessar elskur, greinilega vinir manns. Love jú sætu mín Koss Enda litla prinsessan sem fæðist bráum verður ofdekruð af Huldu "frænku" hehe.


Sumarið er búið að líða alltof fljótt. Ég er varla komin fyrr en ég þarf að pakka öllum helv... Fötunum mínum aftur saman til að fara suður. Ég get ekki sagt að tilhlökkunin sé mikil að fara í Reykjavík. Okkur Sigga líður ótrúlega vel hérna fyrir austan! Enda mikið af vinum okkar hérna. Við erum búin að fara í matarboð, kokteilboð í kokteilklúbbnum KIDDI, golf, fyllerisgolf og Happy Gilmore golf, ball, snilldar partý, hverfapartý og bara gert allan andskotann ef ég má taka svo til orða!

Ísabella Danía og Haukur Eron eru búin að vera hjá okkur í 2-3 vikur. Heimir fór á sjóinn og Anna Gulla fór að vinna í rvk. Mamma var í sumarfríi þannig að hún var heima með þau. En það er sko óhætt að segja að það sé búið að vera mikið að gera. Berjamó, hjólatúr,lautarferð,vatnsblöðruslag,kubb og allir leikirnir, það var æðislegt að fá þau hingað!

Ég bjó samt í poka í mest allt sumar. Þar sem að ég var að flakka á milli Esk og Rey til skiptis og fötin mín öll á Esk. Get ekki sagt að það hafi verið skemmtilegt. En þetta mun breytast, kannsi verður næsta sumar svona síðan verður bara keypt hús... ohhhh... ljúft. Get ekki beðið eftir að eiga heima hérna fyrir austan með allt mitt dót! Það er bara 1 ár eftir...

Nú er ég að fara eftir 3 daga suður. Ég næ menningarnótt, Clara vinkona er búin að bjóða mér í afmælisveislu sem er með þemað. Grímupartý. Ég mun eflaust láta sjá mig þar því að hún býr rétt hjá mér. Ég trítla yfir, en ekki fræðilegur að ég ætla niður í bæ, hef einu sinni gert að og mun aldrei gera það aftur. Ætla samt að horfa á flugeldasýninguna, mjög líklega bara heiman frá mér.
Ég neita því ekki að það verður ljúft að vera útaf fyrir sig að nýju. Ekki það að foreldrar okkar hafi verið eitthvað erfiðir bara þegar við höfum verið bara 2 þá er það óskup ljúft að vera bara 2.

Ég mæti síðan GALVÖSK á Ljósanótt í Kefl city eins og hölt hæna. Anna Alb er búin að lofa að taka mig á hestbak upp og niður hafnargötuna þannig að ég verð í góðum málum. En við verðum hjá mömmu og pabba í kefl á Heiðarbrún.

Skólinn hjá mér byrjar núna 26. Þá er skólasetning, fyrsti skóladagurinn er 27. Ég semsagt komst inn í verklega nuddið og það mun vera á kvöldin frá 5-9 3x í viku og aðra hverja helgi. Það verður frábært. Ég verð síðan í fjarnámi frá FÁ eins og ég er búin að vera að gera. Á alls ekki mikið eftir. Ég þarf semsagt að finna mér vinnu frá  7-2 eða 3. Spurning hvernig það á eftir að ganga.
Ég er að fara í aðgerð eftir 9 daga eða 28.ágúst. Ég verð eflaust eh tíma að jafna mig eftir það. En skólastjórinn sagði að það væri fínt þá gætu nemendurnir séð hvernig ætti að meðhöndla meiðsli. Ég verð því heima og verð bara í skólanum og fjarnáminu. Fyrst um sinn. Ég ætla að fara að vinna 1. okt. Þá verður komin regla á þetta allt og ég get bætt inn vinnu.
Ég er líka að fara með allri fjölskyldunni til Tenerife eins og ég sagði í síðasta bloggi.
Við breyttum um hótel og verðum á þessu hóteli:
Parque Santiago Apartments:









Eins og þið sjáið á þessum myndum get ég ekki kvartað! Ég hlakka bara ofur mikið til! Þetta verður alveg æðislegt. Ef þið viljið sjá meira af þessu hóteli og öfundast út í mig hehe þá er slóðin www.sumarferðir.is

Þetta er allavega það sem er á döfinni. Mikið að gera framundan en það er alveg þess virði. Vonandi þolir bara hnéð og bakið á mér þetta.
Pollýanna verður allavega á svæðinu til að grípa neikvæðnina ef hún kemur upp.

En elskurnar mínar hafið það sem allra best og búið ykkur undir veturinn.
Dimmuna og snjóinn, bara að vera bjartsýnn þá verður komin jól og sumar áður en við vitum af.
Gunna glaða kveður að sinni.

Speki dagsins:

" Oft eru læknar með lífið í lúkunum." Glottandi